Grunnnám slökkviliðsmanna

Í lok síðustu viku lauk fimm manna hópur frá Slökkviliði Akureyrar grunnnámi Brunamálaskólans. Grunnnáminu er skipt upp í fjórar lotur þar sem hver lota er byggð upp á bóklegri og verklegri kennslu.
Í fyrstu lotu er farið yfir slökkvitækni, en þar er áhersla lögð á vatnsöflun, vinnu með vatn í slökkvistarfi og reykköfun. Í annarri lotu er farið yfir björgunartækni, þar sem áhersla er lögð á björgun fastklemmdra úr ökutækjum og umönnun sjúklinga. Í þriðju lotu er farið yfir slökkvi- og björgunartækni, þar sem áhersla er lögð á rústabjörgun, gróðurelda og vinnu með mismunandi tegundum af froðu. Fjórða og síðasta lotan er um hættuleg efni og sérstakar aðstæður þar sem áhersla er lögð á vinnu vegna leka á hættulegum efnum.
Að grunnnámi loknu öðlast slökkviliðsmenn rétt til að sækja um löggildingu sem slökkviliðsmenn. Næst á dagskrá hjá hópnum er framhaldsnám fyrir slökkviliðsmenn sem hafa slökkvistarf að aðalstarfi sem haldið verður eftir áramótin.
Við óskum þessum flotta hóp til hamingju með að hafa lokið grunnnáminu 😊









