Björnis brunabangsi flytur til Íslands

Elva Dögg Pálsdóttir • 15. ágúst 2025

Það eru gleðitíðindi að tilkynna að Björnis brunabangsi er að flytja til Íslands. Björnis kemur frá Þrándheimi í Noregi og er hann væntanlegur með flugi til landsins 19. ágúst nk. Hann hefur náð gríðarlegum vinsældum meðal allra aldurshópa í sínu heimalandi og er þetta í fyrsta skipti sem Björnis leggur land undir fót. 


Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er ábyrgðaraðili verkefnisins en Björnis  mun vera öllum slökkviliðum landsins til aðstoðar við fræðslu og forvarnarstarf, einkum þegar kemur að fræðslu fyrir yngstu kynslóðina. Björnis hefur nú þegar tryggt sér stað í hjörtum margra íslenskra barna þar sem sjónvarpsþættir um Björnis, eða Bjössa brunabangsa eins og hann er oft kallaður, hafa verið sýndir á RÚV og hafa þættirnir slegið í gegn.



Um er að ræða stórt og metnaðarfullt verkefni sem stuðlar að bættum brunavörnum á heimilum landins til framtíðar. Það hefur hlotið virkilega jákvæðar undirtektir og án aðkomu styrktaraðila hefði þetta verkefni ekki verið mögulegt. Björnis er spenntur fyrir nýjum heimkynnum.

Eftir Elva Dögg Pálsdóttir • 11. nóvember 2026
Í lok síðustu viku lauk fimm manna hópur frá Slökkviliði Akureyrar grunnnámi Brunamálaskólans. Grunnnáminu er skipt upp í fjórar lotur þar sem hver lota er byggð upp á bóklegri og verklegri kennslu. Í fyrstu lotu er farið yfir slökkvitækni, en þar er áhersla lögð á vatnsöflun, vinnu með vatn í slökkvistarfi og reykköfun. Í annarri lotu er farið yfir björgunartækni, þar sem áhersla er lögð á björgun fastklemmdra úr ökutækjum og umönnun sjúklinga. Í þriðju lotu er farið yfir slökkvi- og björgunartækni, þar sem áhersla er lögð á rústabjörgun, gróðurelda og vinnu með mismunandi tegundum af froðu. Fjórða og síðasta lotan er um hættuleg efni og sérstakar aðstæður þar sem áhersla er lögð á vinnu vegna leka á hættulegum efnum. Að grunnnámi loknu öðlast slökkviliðsmenn rétt til að sækja um löggildingu sem slökkviliðsmenn. Næst á dagskrá hjá hópnum er framhaldsnám fyrir slökkviliðsmenn sem hafa slökkvistarf að aðalstarfi sem haldið verður eftir áramótin. Við óskum þessum flotta hóp til hamingju með að hafa lokið grunnnáminu 😊
Eftir Elva Dögg Pálsdóttir • 26. maí 2026
Árlega heimsækir Slökkvilið Akureyrar elstu börnin í leikskólunum á Eyjafjarðarsvæðinu til þess að fræða börnin um eldvarnir. Í heimsóknunum nýtur Slökkviliðið aðstoðar Bjönis brunabangsa. Börnin fá fræðslu um eldvarnir og fá að kynnast starfi slökkviliðsmanna og búnaðinum sem þeir nota í starfi sínu. Í heimsóknunum á leikskólana fá börnin bók um Björnis brunabangsa, en í henni eru meðal annars þrautir, verkefni og fræðsla um eldvarnir. Þriðjudaginn 12. maí síðast liðinn var haldin útskriftarhátíð fyrir börnin úr elstu deildum leikskólanna sem þakklætisvott frá Slökkviliðinu fyrir þá góðu vinnu sem þau hafa sinnt í brunavörnum í leikskólunum í vetur. Þá voru leikskólarnir sóttir á rútum og boðið í heimsókn á Slökkvistöðina þar sem þau glímdu meðal annars við þrautabraut, fengu að æfa sig á brunaslöngunum og prófa reykköfun. Í ár kom Björnis brunabangsi sjálfur í heimsókn og tók myndir með börnunum og að sjálfsögðu var brunadansinn stíginn. Að lokum var svo öllum boðið upp á grillaðar pylsur og safa. Um 350 börn mættu á Slökkvistöðina og áttu með okkur frábæran dag. Við viljum þakka þessum flottu krökkum og starfsfólki leikskólanna fyrir heimsóknina og samveruna í vetur.
Sýna meira