Krafa Miðstöðvar Sjúkraflugs um tafarlaus viðbrögð vegna lokana á flugbrautum Reykjavíkurflugvallar

Elva Dögg Pálsdóttir • 6. febrúar 2025

Þann 10. janúar sl. var tilkynnt um verulegar takmarkanir á flugumferð um Reykjavíkurflugvöll. Sú takmörkun er fólgin í lokun tveggja flugbrauta, 13 – 31, í myrkri vegna áhrifa trjágróðurs á aðflugs- og brottflugsfleti umræddra flugbrauta. Þann 6. febrúar síðastliðinn var svo tilkynnt að innan 48 klukkustunda verði flugbrautunum lokað fyrir allri flugfumferð, burtséð frá birtuskilyrðum. Sú lokun mun því taka gildi laugardaginn 8. febrúar.

 

Í kjölfar þeirra takmarkana sem settar voru á notkun umræddra flugbrauta 10. janúar sl. sendi Miðstöð Sjúkraflugs frá sér yfirlýsingu þar sem lýst var áhrifum takmarkanna á aðgengi sjúklinga af landsbyggðinni að nauðsynlegri og oft á tíðum bráðri læknisþjónustu á Landspítala. Það er augljóst og óumdeilt að algjör lokun á umræddum flugbrautum mun hafa mun verulegar afleiðingar á lífslíkur og batahorfur fjölmargrar bráðveikra og alvarlega slasaðra sjúklinga sem þurfa á tímaháðum inngripum að halda á Landspítala þar sem önnur sjúkrahús á landinu geta ekki veit viðlíka meðferð. Einnig er augljóst að keðjuverkandi afleiðingar umræddra lokana munu valda fráflæðisvanda á Landspítala, þrengja mun að legurýmum annarra sjúkrahúsa og tafir munu verða á aðgerðum og rannsóknum sjúklinga af landsbyggðinni.

 

Miðstöð sjúkraflugs á Íslandi lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þessara lokana, enda er óheft aðgengi sjúkraflugvéla að Reykjavíkurflugvelli í mörgum tilfellum lífsnauðsynlegt fyrir veika og slasaða af stærstum hluta landsins.

 

Líkt og fram kom í fyrri yfirlýsingu frá hópnum eru hátt í 650 sjúklingar fluttir á ári til Reykjavíkur með sjúkraflugvélum af landsbyggðinni. Í um 45% tilfella er um að ræða sjúklinga sem nauðsynlega þurfa að komast í bráða þjónustu á Landspítala Háskólasjúkrahúsi, þar með talið sjúklingar sem þurfa að komast í tímaháð inngrip, s.s. vegna bráðra kransæðaþrenginga, heilablóðfalla og háorkuáverka. Í slíkum tilfellum er ástand sjúklinga með þeim hætti að lengdur flutningstími sem myndi hljótast vegna flutnings frá Keflavíkurflugvelli, hvort sem um er að ræða landleiðina með sjúkrabíl eða með þyrlu, getur dregið verulega úr lífslíkum eða batahorfum viðkomandi.

 

Út frá gögnum um flug á Reykjavíkurflugvelli eru flugbrautir 13 og 31 notaðar í um 25% af öllum hreyfingum á flugvellinum. Sé það heimfært yfir á sjúkraflugið má gera ráð fyrir að það hafi áhrif á ríflega 160 flug á ári, eða um 70 sjúklinga í hæstu forgangsflokkum miðað við fjölda sjúklinga árið 2024. Um helmingur þessa sjúklingahóps er fluttur í tímaháð og bráð inngrip þar sem allar tafir teljast ógna lífslíkum og batahorfum.

 

Af ofangreindu er það skýr og augljós krafa að aðilar málsins, þ.e. Reykjavíkurborg, Innviðaráðuneyti, ISAVIA og Samgöngustofa, axli ábyrgð og tryggi opnun og rekstraröryggi flugbrauta 13 og 31 með eins tafarlausum hætti og mögulegt er.

 

Aðilar að Miðstöð sjúkraflugs á Íslandi eru Slökkvilið Akureyrar, Sjúkrahúsið á Akureyri og Norlandair.

 

Nánari upplýsingar veita:

Tómas Dagur Helgason, flugrekstrarstjóri Norlandair, sími: 898-2024

Gunnar Rúnar Ólafsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar, sími: 893-0674

Chris Wolffensperger, yfirlæknir svæfinga- og gjörgæslulækninga Sjúkrahússins á Akureyri, sími: 860-0589

Eftir Elva Dögg Pálsdóttir • 11. nóvember 2026
Í lok síðustu viku lauk fimm manna hópur frá Slökkviliði Akureyrar grunnnámi Brunamálaskólans. Grunnnáminu er skipt upp í fjórar lotur þar sem hver lota er byggð upp á bóklegri og verklegri kennslu. Í fyrstu lotu er farið yfir slökkvitækni, en þar er áhersla lögð á vatnsöflun, vinnu með vatn í slökkvistarfi og reykköfun. Í annarri lotu er farið yfir björgunartækni, þar sem áhersla er lögð á björgun fastklemmdra úr ökutækjum og umönnun sjúklinga. Í þriðju lotu er farið yfir slökkvi- og björgunartækni, þar sem áhersla er lögð á rústabjörgun, gróðurelda og vinnu með mismunandi tegundum af froðu. Fjórða og síðasta lotan er um hættuleg efni og sérstakar aðstæður þar sem áhersla er lögð á vinnu vegna leka á hættulegum efnum. Að grunnnámi loknu öðlast slökkviliðsmenn rétt til að sækja um löggildingu sem slökkviliðsmenn. Næst á dagskrá hjá hópnum er framhaldsnám fyrir slökkviliðsmenn sem hafa slökkvistarf að aðalstarfi sem haldið verður eftir áramótin. Við óskum þessum flotta hóp til hamingju með að hafa lokið grunnnáminu 😊
Eftir Elva Dögg Pálsdóttir • 26. maí 2026
Árlega heimsækir Slökkvilið Akureyrar elstu börnin í leikskólunum á Eyjafjarðarsvæðinu til þess að fræða börnin um eldvarnir. Í heimsóknunum nýtur Slökkviliðið aðstoðar Bjönis brunabangsa. Börnin fá fræðslu um eldvarnir og fá að kynnast starfi slökkviliðsmanna og búnaðinum sem þeir nota í starfi sínu. Í heimsóknunum á leikskólana fá börnin bók um Björnis brunabangsa, en í henni eru meðal annars þrautir, verkefni og fræðsla um eldvarnir. Þriðjudaginn 12. maí síðast liðinn var haldin útskriftarhátíð fyrir börnin úr elstu deildum leikskólanna sem þakklætisvott frá Slökkviliðinu fyrir þá góðu vinnu sem þau hafa sinnt í brunavörnum í leikskólunum í vetur. Þá voru leikskólarnir sóttir á rútum og boðið í heimsókn á Slökkvistöðina þar sem þau glímdu meðal annars við þrautabraut, fengu að æfa sig á brunaslöngunum og prófa reykköfun. Í ár kom Björnis brunabangsi sjálfur í heimsókn og tók myndir með börnunum og að sjálfsögðu var brunadansinn stíginn. Að lokum var svo öllum boðið upp á grillaðar pylsur og safa. Um 350 börn mættu á Slökkvistöðina og áttu með okkur frábæran dag. Við viljum þakka þessum flottu krökkum og starfsfólki leikskólanna fyrir heimsóknina og samveruna í vetur.
Sýna meira