Mýflug

Sjúkraflug Mýflug sinnir nær öllu sjúkraflugi innan Íslands samkvæmt samningi við Heilbrigðisráðuneytið, og er samningstíminn frá 2006 til

Mýflug

Sjúkraflug

Mýflug sinnir nær öllu sjúkraflugi innan Íslands samkvæmt samningi við Heilbrigðisráðuneytið, og er samningstíminn frá 2006 til 2011.

Miðstöð sjúkraflugsins er á Akureyri og starfar Mýflug ásamt Slökkviliði Akureyrar og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að því.

Einnig sinnum við flutningi sjúklinga á milli landa sé þess óskað.

 Sé óskað eftir sjúkraflugi vinsamlegast hafið samband við 112

(Skriflegar sjúkraflugsbeiðnir má nálgast hér)

 

Á Akureyrarflugvelli er staðsett sérútbúin sjúkraflugvél af gerðinni Beechcraft Kingair 200 sem ávallt er reiðubúin til flugs, á öllum tímum sólarhringsins, allt árið um kring.

Flugvélin er búin jafnþrýstibúnaði, sem gerir henni kleift að fljúga ofar flestum veðrum, hefur mjög góða flugdrægni og getur hún jafnframt notast við stuttar flugbrautir, líkt og víða eru á Íslandi og Grænlandi.

Í áhöfn flugvélarinnar eru flugstjóri, flugmaður og sjúkraflutningamaður. Þegar þörf krefur fylgir einnig læknir frá FSA sjúklingum.

Um borð er pláss fyrir tvo sjúklinga á börum og allur nauðsynlegur búnaður til umönnunar þeirra alltaf til staðar. Sérstakar ráðstafanir eru gerðar þegar flogið er með þungaðar konur og börn.

 

 Að meðaltali fáum við 400-500 sjúkraflugsbeiðnir á ári, og eru flest útköllin innan Íslands. Ásamt því sinnum við sjúkraflugi á milli landa, einkum frá Grænlandi, en einnig er mögulegt að fljúga í beinu flugi (án millilendinga) til áfangastaða á Norðurlöndunum og Bretlandseyjum.

 Vakni einhverjar spurningar má hafa samband við:

  • Flugfélagið Mýflug: 464-4400 - (Hafa samband)
  • Slökkvilið Akureyrar: 461-4200

* þessar upplýsingar er teknar af heimasíðu Mýflugs sjá hér  Heimasíða Mýflugs