Tækjakostur

Slökkvilið Akureyrar er vel búið tækjum og tólum til að sinna þeim verkefnum sem því berast.

Scania dælubíll - 61-132

Scania árgerð 2005 með 5000 L/mín Ziegler dælu, 3000 L vatnstank og 200 L froðutank. Auk þess er hann útbúinn mjög öflugum klippubúnaði frá Holmatro.

Scania

IVECO dælubíll 61-131

IVECO, árgerð 2019, er með 900L vatnstank og 40L froðutank auk þess sem hann er útbúinn klippubúnaði ásamt fleiru og er hannaður fyrir slökkvistarf í jarðgöngum. 

Scania körfubifreið 61-151

Árið 2020 festi SA kaup á nýrri körfubifreið, Scania 2021 árgerð, með 32 metra hárri lyftu. Hún er útbúin mónitor sem gefur 2650 l/mín og er fastur á körfu.

MAN dælubíll - 61-133

MAN árgerð 1998 með 3000 L/mín Rosenbauer dælu, 3000 L vatnstank og 150 L léttvatnstank. Auk þess er bíllinn útbúinn klippubúnaði og sigbúnaði ásamt fleiru.

 Man

MAN körfubíll 

Man árgerð 1987 með Bronto Skylift 28m körfu með björgunarstiga og 2000 L/mín monitor á körfunni.

Körfubíll

Eiturefnagámur 61-161

Eiturefnagámur með öllur því helsta sem þarf til viðbragðs við eiturefnaslysi. Þar má nefna 4 eiturefnagalla frá Trelleborg, sturtutjöld, vatnshitara, dælur, eiturefnamæla og fleira.

Gámur

Ford F750 Big Job - SA1

Ford F750 árgerð 1953 með 1900 L/mín Darley slökkvidælu og 1200L vatnstank. Bíllinn var í fyrstu línu slökkviliðsins til ársins 1999 en var gerður upp og er nú til sýnis á slökkvistöðinni. 

SA-1

Þjónustubílar

Slökkvilið Akureyrar á þrjá þjónustubíla; Volkswagen Amarok, Ford Edge og Mazda CX-30.

Amarok

Edge