miðvikudagurinn 08. september 2010
Notendanafn: Lykilorð: Muna lykilorð?
« Ágúst 2010 »
SMÞMFFL
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031 
Viðburðir
    Könnun
    Ætti að staðsetja eina björgunarþyrlu á Akureyri?

    Nei
    Veit ekki

    Spyrill: Ingimar Eydal
    Sjá allar
    Póstlistaskráning
    Netfang:


    Útskriftardagur Loga og Glóð
    Allar > Almennt - 21.05.2010 11:15 - Þorbjörn Haraldsson - 424 Lestrar - Umræður (0)
    Útskriftardagur Loga og Glóð
    Góður hópur á gleðistund

    Um 300 leikskólabörn á Akureyrarsvæðinu komu í útskriftarveislu á slökkvistöðinni í tengslum við eldvarnarverkefnið Logi og Glóð.



    Verkefnið er unni í samvinnu við Eignarhaldsfélag Brunabótafélags Íslands. Við erum að klára þriðja árið með þetta verkefni sem hefur gengið mjög vel. Það eru elstu börnin í leikskólunum sem vinna að þessu verkefni með okkur og skoða leikskólann sinn einu sinni í mánuði, þar sem farið er yfir nokkur öryggisatriði í leikskólunum. Verkefnið er í rauninni tvískipt við byrjum á því að heimsækja leikskólana á haustin og ræðum við starfsfólkið sem kemur til með að sjá um verkefnið fyrir leikskólans hönd. Í október fórum við síðan í heimsókn í alla leikskólana á stór Akureyrarsvæðinu, ( Svalbarðseyri, Hrafnagil, Hörgárbyggð með líka) einnig sáum við um þessa fræðslu í þremur leikskólum á Dalvík. Í þessari heimsókn þá mættu 2 slökkviliðsmenn og fóru þeir í verkefnið með börnunum og sýndu svo slökkvibifreið í framhaldi. Alls heimsóttum við 20 leikskóla í þessu verkefni í vetur.

    Það er svo ekki minni hamingjudagur hjá okkur hér í slökkviliðinu að geta tekið á móti 300 brosandi börnum. En þau glímdu við þrautabraut, sprautuðu vatni og skoðuðu búnað liðsins. Grillaðar pylsur voru í boði og ekki var verra að komast í rútuferð til og frá svæðinu.

    Slökkvilið Akureyrar þakkar þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóginn við að gera þetta mögulegt.

    Þorbjörn Haraldsson

    Slökkviliðsstjóri

    Til baka