miðvikudagurinn 08. september 2010
Notendanafn: Lykilorð: Muna lykilorð?
« Júní 2010 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930 
Viðburðir
    Könnun
    Ætti að staðsetja eina björgunarþyrlu á Akureyri?

    Nei
    Veit ekki

    Spyrill: Ingimar Eydal
    Sjá allar
    Póstlistaskráning
    Netfang:


    Menntun slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna

    Gerðar eru miklar kröfur til hæfni og þjálfunar þeirra sem starfa á útkallssviði Slökkviliðs Akureyrar. Það kallar á mikla menntun og þjálfun sem er í stöðugri endurskoðun. Starfsmenn þurfa meðal annars að standast strangar kröfur um líkamsþjálfun og gangast reglulega undir þrekpróf.  Grunnmenntun til að geta starfað sem slökkviliðsmaður er iðnmenntun eða sambærileg menntun, s.s. stúdentspróf.

    Í reglugerð um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna segir svo í 8. grein:

    III. KAFLI

    Nám slökkviliðsmanna.

    8. gr.

    Þeir sem ráðnir eru til starfa sem slökkviliðsmenn skulu fullnægja eftirtöldum skilyrðum:

    1.      Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.

    2.      Hafa að lokinni reynsluráðningu aukin ökuréttindi til að stjórna: a) vörubifreið og b) leigubifreið.

    3.      Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu.

    Víkja má tímabundið frá einu eða fleiri skilyrðum í 1. mgr. vegna þeirra sem gegna slökkvistarfi eða starfa við brunavarnir samkvæmt 2. tölul. 1. gr. reynist ekki unnt að fá menn til starfa sem uppfylla framangreind skilyrði.

    Endurráðning í starf slökkviliðsmanna miðast við það að þeir standist þær kröfur sem fram koma í þessum kafla.

     Meirihluti starfsmanna liðsins hefur menntun til að sinna bæði slökkvistörfum og sjúkraflutningum.  

    Menntun til slökkvistarfa.

    Menntun starfsmanna til slökkvistarfa er bundin í reglugerð og er sem hér segir:

    Fornám
    Nám sem nýliði verður að taka áður en hann hefur byrjar á vakt hjá slökkviliðinu. Skyldunám að lágmarki 80 kennslustundir.

    Atvinnuslökkviliðsmaður
    Nám sem slökkviliðsmaður má hefja eftir sex mánuði í starfi. Skyldunám sem er 540 kennslustundur, en hefur nú verið skipt í tvennt. Umsjón námskeiðsins er í höndum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Akureyrar og Brunavarna Suðurnesja.

    Eldvarnaeftirlit
    Nám fyrir þá sem starfa við eldvarnaeftirlit. Ekki skyldunám nema fyrir þá sem sækjast eftir því að starfa við eldvarnaeftirlit.

    Ennfremur er slökkviliðsmönnum boðið upp á meiri menntun með eftirfarandi námskeiðum:

    Landflokkur
    Menntun í björgun mannslífa utan alfaraleiða.

    Stjórnunarnámskeið
    Menntun fyrir aðal-, varð- og aðstoðarvarðstjóra í stjórnun á vettvangi.

    Vettvangsstjóri
    Námskeið sem veitir réttindi til starfa sem vettvangsstjóri í almannavarnaskipulagi. Námstími fimm dagar.

     

     

     

    Menntun til sjúkraflutninga.

    Allir sjúkraflutningamenn liðsins taka grunnnámskeið í sjúkraflutningum. Um er að ræða skyldunám sem tekur 15 daga. Sjúkraflutningamönnum stendur auk þess til boða fjöldi námskeiða, til dæmis neyðarflutningsnám sem tekur 210 daga og samanstendur af 25 daga bóklegu námi og starfsþjálfun á sjúkrahúsi í fimm daga, auk 180 daga starfsþjálfunar á neyðarbíl. Námskeiðið er haldið á vegum Sjúkraflutningaskólans. Sjá www.ems.is


    Þá býðst neyðarflutningsmönnum að sækja starfsnám erlendis, svonefnt paramedic-nám hjá Center for Emergency Medicine í Pittsburgh. Námið tekur eitt ár eða þrjár annir. Sjö starfsmenn hafa lokið þessu námi og í ágúst 2001 ljúka fjórir starfsmenn til viðbótar náminu í Pittsburgh. Nánari upplýsingar um þetta nám er að finna á www.pitt.edu