Viðbrögð við vá

Forvarnir eru mikilvægur þáttur í því að takast á við vá. Upplýsingar og leiðbeiningar um forvarnir og viðbrögð við hvers kyns vá er að finna á  heimasíðu Almannavarna, www.almannavarnir.is . Almenningur er hvattur til þess að kynna sér leiðbeiningarnar vel.

Almennar leiðbeiningar:
Á heimilum og vinnustöðum ætti fólk að ræða saman um hugsanlegar hættur, ræða tryggingamál, skoða útgönguleiðir hússins og kanna staðsetningu öryggisbúnaðar. Nám í skyndihjálp er hagnýtt og getur bjargað mannslífum. Rauði kross Íslands veitir upplýsingar um námskeið fyrir almenning og fyrirtæki.

Mikilvægt er að kunna að meðhöndla öryggisbúnaðinn. Meðal öryggisbúnaðar á heimilum og vinnustöðum ætti að vera:

  • slökkvitæki
  • reykskynjarar
  • brunastigar eða brunakaðlar til undankomu af efri hæðum húsa
  • Verkfæri, svo sem hamar, sög, töng, rörtöng, skrúfjárn, skófla, öxi og kúbein


Heppilegt er að koma eftirtöldum búnaði fyrir í viðlagakassa sem allir þurfa að vita hvar geymdur er:

  • sjúkrakassa
  • vasaljósi
  • útvarpi með rafhlöðum
  • bæklingi um skyndihjálp
  • lista yfir mikilvæg símanúmer (nákominna, þjónustuaðila o.fl.)
  • neyðaráætlun fjölskyldunnar/vinnustaðarins

Ræðið og æfið viðbrögð við hættuástandi og látið börn taka fullan þátt í þeim.

Nánari upplýsingar:
Heimasíða Almannavarna, www.almannavarnir.is