Eldur í Búlandi

Talsverður eldur var í húsinu þegar að var komið en vel gekk að slökkva hann. Fóru fjórir reykkafarar inn í húsið og komust fljótt fyrir mesta eldinn en nokkur tími fór í að slökkva í glæðum í veggjum og þaki en rjúfa þurfti þak á millibyggingu.  Slökkvistarfi var lokið um hálf níu í morgun.  Húsið er mikið skemmt, innbú allt ónýtt af eldi, hita og sóti.  Ekki er vitað um eldsupptök en lögreglan rannsakar málið.

Fleiri myndir eru á myndasíðu.