Eldur í myndlistaskólanun á Akureyri

Reykafarar komust fljótlega í upphafl eldsins í kaffiaðstöðu á miðhæð hússins og vel gekk að ráða niðurlögum hans. Húsið er stórt og á þremur hæðum og hafði reykur komist í stigahús á milli hæða. Grunur beinist að rafmagnstækjum í eldhúsinnréttingu á kaffistofu en rannskókn stendur yfir. Það er ljóst að ekki mátti muna miklu að verr færi þar sem mikill hiti og reykur var í allri miðhæðinni og ljóst að eldurinn hafði kraumað um stund. Tjón er talsvert, en mikið er af viðkvæmum tölvubúnaði í húsinu ásamt bókasafni og einhverjum verkum nemanda. Þorbjörn H.