Hús mikið skemmt eftir eldsvoða

 

Íbúar í suðurhluta hússins forðuðu sér út þegar þeir urðu eldsins varir.  Slökkviliðið náði fljótt tökum á megineldinum en allnokkurn tíma tók að komast fyrir allan eld en húsið er yfir hundrað ára gamalt og útveggir einangraðir með reiðingi.  Þurfti talsvert að rífa til að komast fyrir allan eld.

Slökkvistarfi lauk rétt fyrir klukkan 18 en vakt var höfð við húsið til kl. 20.

Íbúðin, þar sem eldurinn kom upp, er ónýt, og aðrar íbúðir í húsinu eru nokkuð skemmdar af völdum reyks og sóts.

Frétt á RUV.

Frétt akureyri.net