Íbúð mikið skemmd eftir bruna

Þegar slökkvilðið kom á vettvang var mikill reykur í íbúðinni og lagði reyk út um brotinn glugga á vesturhlið hússins.  Tveir reykkafarar fóru strax inn í íbúðina sem reyndist mannlaus.  Eldur logaði í sófa og sjónvarp og tók skamma stund að slökkva hann.  Íbúðin var síðan reykræst.  Lítill reykur fór í aðrar íbúðir enda notaður yfirþrýstingur við slökkvistarfið.  Flestir aðrir íbúar hússins voru komnir út þegar slökkviiðið kom á staðinn.

Frétt mbl.is