Laus störf slökkviliðsmanna.

Slökkvilið Akureyrar er í vexti vegna aukinna verkefna og vilja bæjaryfirvalda til að hafa þessa þjónustu eins og best gerist á landinu. Þessi vilji bæjaryfirvalda lýsir sér best í því sem hefur verið að gerast hjá okkur. Nýkaup á bílum og búnaði, yfirstandandi stækkun á húsnæði slökkviliðsins, fjölgun starfsmanna, betri og meiri menntun.

Það eru spennandi tímar hjá Slökkviliði Akureyrar, tækifærin og möguleikarnir eru margir fyrir starfsmenn.