Lok vítisviku

Nýliðar slökkviliðsins leystu margvísleg útkallsverkefni yfir daginn, þar sem reyndi á þá faglegu þætti sem æfðir hafa verið í vikunni. Það var samdóma álit þeirra er tóku þátt að vel hafi tekist til, og á reynslan eftir að skila sér í auknum gæðum í útköllum liðsins.  Verkefnavika sem þessi krefst mikils undirbúnings,og viljum við stjórnendur slökkviliðsins þakka öllum þeim sem aðstoðuðu við undirbúning og framkvæmd. Það er afar mikilvægt að liðsmenn æfi reglulega til að viðhalda færni sinni. Verkefni slökkviliðsins eru margvísleg, sem kallar á fjölhæfni liðsheildarinnar til að sinna þeim verkefnum sem slökkviliðið er kallað til í.