Nýtt starfsfólk

Martha Óskarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu í eldvarnareftirliti.  Martha er 44 ára gömul og hefur starfað sem varðstjóri í Lögreglunni á Akureyri undanfarin ár en hún starfaði áður í Lögreglunni í Reykjavík.

Gunnar Björgvinsson er 38 ára slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður EMT-Paramedic sem kemur til starfa í varðliði.  Gunnar er menntaður húsasmiður sem hefur starfað hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðissins síðan 1995 en þar áður starfaði hann hjá Slökkviliði Ísafjarðar.  Gunnar hefur lokið öllum hugsanlegum námskeiðum í faginu og er mikill fengur að fá hann til starfa.

Magnús Smári Smárason er 22 ára múrari.  Hann hefur starfað með björgunarsveitinni Súlum.

Hulda Þorgilsdóttir er lausráðin til afleysinga í sumar.  Hulda er 24 nemi en hefur stundað ýmis störf.

Anton Carrasco er lausráðin til 1. október.  Anton er 27 ára nemi í jarðfræði við H.Í. Hann hefur m.a. unnið sem yfirmaður skíðagæslu í Hlíðarfjalli og starfað í 10 ár með björgunarsveitinni Súlum.

Tómas Pálmi Pétursson er 34 pípulagningamaður.  Hann hefur undanfarin ár starfað á sjó.  Tómas Pálmi kemur til starfa 1. september nk.

Við bjóðum þau öll velkomin til starfa.