Ráðning aðstoðarslökkviliðsstjóra

Björn Heiðar Sigurbjörnsson
Björn Heiðar Sigurbjörnsson

Björn Heiðar Sigurbjörnsson hefur verið ráðinn aðstoðarslökkviliðsstjóri hjá slökkviliði Akureyrar. Björn Heiðar hefur viðamikla reynslu og þekkingu af stjórnun slökkviliða. Hann starfaði meðal annars sem slökkviliðsstjóri Brunavarna á norðaustursvæði og einnig sem aðstoðarslökkviliðsstjóri Brunavarna á Austurlandi. Björn hóf störf hjá slökkviliði Vopnafjarðar 1985 og hefur því starfað í faginu í um 28 ár.

Þorbjörn Guðrúnarson

Slökkviliðsstjóri.