Reykur / gufa

Allt vakthafandi lið fór á staðinn á tveimur dælubílum ásamt körfubifreið.  Við komu á vettvang kom í ljós að um gufu var að ræða en heitt vatn flæddi um aðra hæð hússins og niður á þá fyrstu. Húsið er þrílyft timburhús sem hefur verið mannlaust um tíma. Lokað var fyrir inntak hússins og gufu loftað út, húsið er mikið skemmt af völdum vatns og gufu.