SA sendir mann í Paramedicnám til Pittsburg (og Hvanndalsbræður fara í frí!)

Það er mikilvægt að auka og efla þekkingu sjúkraflutningamanna á öllum sviðum og hér á Akureyri skiptir það ekki hvað minnstu máli vegna þess að héðan er mest allt sjúkraflug landsins gert út og litið er til Akureyrar ef stærri slys verða á Norðurlandi.  Einnig ætti fjölgun paramedic manna að styrkja starfsemi Sjúkraflutningaskólans.

Til gamans birtum við hér mynd af heimasíðu Hvanndalsbræðra en hér eru þeir bræður ásamt  öðrum ekki ófrægari bræðrum en Valur er þessi lengst til vinstri (það er ekki oft sem Laddi virkar eðlilegur á mynd!!)

Smelltu hér til að sjá myndina í fullri stærð