Slökkvilið kallað í eld.

Slökkvilið Akureyrar var kallað út í eld þar sem grunur lék á að íbúi væri innandyra.
Svo reyndist sem betur fer ekki vera en reykræsta þurfti íbúðina vegna mikils reyks sem kom frá potti á eldavél.
Mátti ekki miklu muna að eldurinn breiddist út en árvökulir nágrannar heyrðu í reykskynjara og sáu reyk stíga út frá glugga í eldhúsi.
Sannaðist þar mikilvægi reykskynjara og góðra nágranna.

Vel gekk að reykræsta.