Slökkviliðsstjóri segir upp störfum.

Erling Þór hefur starfað sem slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar síðan í janúar 2003.  Hann tók við starfinu af Tómasi Búa Böðvarssyni sem hafði verið slökkviliðsstjóri frá árinu 1974. 

Ingimar Eydal aðstoðarslökkviliðsstjóri mun fara með stjórn Slökkviliðsins þangað til annað verður ákveðið.