Sumarstörf Slökkvilið Akureyrar 2019

Slökkvilið Akureyrar óskar eftir að ráða slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn til starfa. Um er að ræðaafleysingastörf vegna sumarleyfa starfsmanna 2019 við sjúkraflutninga, slökkvistörf og önnur almenn störf slökkviliðsins. Vinnufyrirkomulag er fljótandi vaktakerfi, gefið út með minnst mánaðarfyrirvara og starfstími er frá 1.maí til 1.október.

 

Þar sem hallar á stöðu kvenna hjá slökkviliðinu, eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um.

Helstu verkefni eru:

·         Útköll og æfingar vegna slökkviliðs

·         Sjúkraflutningar, þjálfun, æfingar og endurmenntun

·         Umhirða tækja og búnaðar Slökkviliðs Akureyrar.

 

Menntunar- og/eða hæfniskröfur

·         Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8.gr. reglugerðar nr.792/2001 um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna.

·         Umsæjendur þurfa að hafa gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið og leigubifreið áður en viðkomandi hefur störf.

·         Iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærileg menntun er skilyrði.

·         Þeir sem ráðnir eru til starfa sem slökkviliðsmenn skulu hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og ekki vera haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.

·         Viðkomandi þarf að standast þrekpróf, læknisskoðun auk annarra inntökuprófa.

·         Hafa jákvætt hugarfar og færni í mannlegum samskiptum.

·         Reynsla af störfum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna er kostur sem og menntun.

·         Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

*Framangreindum hæfniskröfum er ekki raðað eftir mikilvægi.

Með umsókn þarf að skila inn eftirfarandi fylgigögnum:

·         Prófskírteinum.

  • Ljósriti af ökuskírteini.
  • Ökuferilsskrá.
  • Almennri ferilskrá.

 

Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í starfið. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar í síma 460-1060 á milli kl 11:00 og 16:00 virka daga.

 

Nánari upplýsingar um starfið veita:

Ólafur Stefánsson, slökkviliðsstjóri                461-4201       olafurst@akureyri.is

Gunnar R Ólafsson, varaslökkviliðsstjóri     461-4202       gunnarr@akureyri.is

 

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is

 

Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

 

Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2019