Tankbíll SA seldur til Fjallabyggðar

Bifreiðin hefur þjónað slökkviliði Akureyrar í 26 ár en hann var keyptur nýr til liðsins 1984. Í ágúst sl. festi SA kaup á 3 ára slökkvibifreið sem leysir þessa af hólmi hér. Það var ekki síður skemmtilegt að geta ekið í gegnum Héðinsfjarðargöng með bílinn til Siglufjarðar og þvílik samgöngubót.

Undirritaður hefur sjálfur aldrei stigið fæti sínum í Héðinsfjörð og því var tilvalið að stoppa þar og stíga út áður en haldið var inn í seinni hluta ganganna yfir til Siglufjarðar. Með tilkomu þessara ganga gerbreytist allt heildarflæði í Eyjafirði og er ljóst að slökkviliðin geta enn betur stutt við hvort annað í aðgerðum sínum.

Slökkvilið Akureyrar óskar Siglfirðingum til hamingju með bílinn enda feikna öflug viðbót við flota þeirra. Sjá má myndir úr ferðinni undir myndaflipanum hér til vinstri á síðunni.  

Þorbjörn Haraldsson

Slökkviliðsstjóri.