Úr dagbók slökkviliðsins

Vaktin er búin að vera nokkuð annasöm hjá Slökkviliðinu í dag. Þegar þetta er skrifað eru búnar að koma koma 5 beiðnir um sjúkraflug, eitt var afboðað, verið er að sinna einu flugi eins og er og eitt bíður. Er því vélin búin að lenda í Vestmannaeyjum, Egilsstöðum, Norðfirði, Reykjavík og Akureyri í dag og vaktin ekki búin. Sjúkrabílarnir hafa einnig verið í verkefnum en það var sjúkraflutningur til Egilstaða í morgun og síðan var farið með sjúkling til Húsavíkur áðan. Sem betur fer hefur verið rólegt í sjúkraflutningum hérna innanbæjar.