Útskriftarhátíð Loga og Glóð

Árlega heimsækir Slökkvilið Akureyrar elstu börnin í leikskólunum á Eyjafjarðarsvæðinu til þess að fræða börnin um eldvarnir. Í heimsóknunum nýtur Slökkviliðið aðstoðar sérstakra aðstoðarmanna, slökkviálfana Loga og Glóð. Börnin fá fræðslu um eldvarnir og fá að kynnast starfi slökkviliðsmanna og búnaðinum sem þeir nota í starfi sínu. Í heimsóknunum á leikskólana fá börnin möppu sem heitir Slökkviliðið mitt, en í henni eru meðal annars þrautir, verkefni og fræðsla um eldvarnir.

Í gær, þriðjudaginn 16. maí, var svo haldin útskriftarhátíð fyrir börnin úr elstu deildum leikskólanna sem þakklætisvott frá Slökkviliðinu fyrir þá góðu vinnu sem þau hafa sinnt í brunavörnum í leikskólunum í vetur. Þá voru leikskólarnir sóttir á rútum og boðið í heimsókn á Slökkvistöðina þar sem þau glímdu meðal annars við þrautabraut, fengu að æfa sig á brunaslöngunum og prófa reykköfun. Að lokum var svo öllum boðið upp á grillaðar pylsur og safa. Um 250 börn mættu á Slökkvistöðina í gær og áttu með okkur frábæran dag, líkt og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni sem Haraldur á Akureyri.net tók í gær.

Við viljum þakka þessum flottu krökkum og starfsfólki leikskólanna fyrir heimsóknina í gær og samveruna í vetur.