Vinningshafar í eldvarnargetrauninni 2009

Heimsóknirnar fóru þannig fram að börnin voru frædd um eldvarnir á heimilum, farið var yfir hvenær á hringja í 1-1-2  og einnig fengu þau að sjá hvernig slökkviliðsmaður lítur út þegar að hann er klæddur í slökkvigalla með reykköfunartæki á sér. 

 

 

 

Nöfn 32 barna víðs vegar af landinu voru dregin úr innsendum lausnum. Tvö börn á starfssvæði Slökkviliðs Akureyrar voru dregin út.  Börnin fengu vegleg verðlaun og voru þau  afhent við athöfn á Slökkvistöð Akureyrar  á 112-daginn, 11. febrúar.

 

 

 

Eftirtalin grunnskólabörn á starfssvæði Slökkviliðs Akureyrar hlutu vinning í Eldvarnagetrauninni að þessu sinni. 

 

 

 

Þorsteinn Már Þorvaldsson                         Lundarskóli
Líney Rut Sigurðardóttir                              Brekkuskóli

 

 

 

Slökkvilið Akureyrar þakkar öllum þeim fjölda barna sem tóku þátt í eldvarnargetrauninni fyrir þátttökuna.